PHOTOS WEBSITES

Here I come to save the day!!! ;)

08. apríl 2008 klukkan 23:30


Elskurnar mínar!!

Að ég skuli dirfast að hunsa bloggið mitt í svona langan tíma!! Ég hef bara enga afsökkun! Maður á alltaf að finna tíma til að blogga ;) lol allavega....

Hvað er nýtt á nálinni...já að er bara svo margt! :) Eitt í einu ;) Er til dæmis búin að eignast nýja vinkonu ;) lol Já hún er ekki eins og fólk er flest...72 ára  Indversk, dansandi mær, Damaianthi. Já þannig vildi svo til að ég og hún Inga mín vorum að röltinu í París og settumst á kaffihús eins og maður á til að gera. Við spjöllum í róglegheitunum...og með tímanum finn ég fyrir nærveru þessara indælu konu, og segi við Ingu: "Veistu mig langar alveg ofboðslega að kynnast þessari indversku konu, hún geislar eitthvað svo"...ég hef nú séð margar konur frá Indlandi en aldrei hef ég fundið fyrir þessari tilfinningu áður. Ég geri nú ekkert í málinu sem stendur en veit það að ef hún leggur leið sínar á dyr að þá myndi ég fara á eftir henni :) Svo skemmtilega vildi til eftir allt saman að hún kemur til okkar og spyr hvaða tungumál við tölum, og þegar að við sögðum henni að þetta væri íslenska að þá alveg ljómaði hún að kæti..."íslenska...vá ég hef aldrei séð fólk frá íslandi" Fyrir henni var þetta hin magnaðasta upplifun :) Island er svo fjarska langt frá Indlandi!


Damaianthi
Damaianthy = frá Chennai í Indlandi

Eftir það að þá komst ég að því að hún er móðir Gítu sem er eigandi kaffihússins og hún var bara hér í heimsókn og hafði svo lítið sem ekkert að gera nema að bíða eftir dóttur sinni. Ég bauð henni þá bara að labba um París með henni ef hún hefði áhuga....hún bara táraðist af gleði :) Þannig hófst sú tengig. Svo að i dag er ég í góðum sambandi við þessar tvær indislegu konur, og er meira en velkomin til Indlans! Ekki er það amalegt þar sem að ég er að skipulegga mína mússikþerapíu Indlandsferð!! Er núna sem sagt búin að koma mér frekar langt áfram í þeim skipulagsmálum...þetta er allt að koma...hægt og rólega ;)
Hún er meira að segja búin að vera að tala við tónlistarhátíðarfólk í hennar bæ svo að hljómsveitin geti komið og spilað :) Bíðum bara spennt að sjá hvað setur ;)

Lífið er svo spennandi ;) bara vera jákvæður...þá höldum við dyrunum opnum fyrir ótal mögulekum.. ;)

Jæja....ætla að leyfa næsta bloggi að njóta næstu frétta...nóg bloggefni eftir! Ég er allavega aftur komin í blogggírinn svo að þið þurfið ekkert að vera svo hrædd um að þurfa að bíða í marga mánuði...bara nokkra daga ;)!!

Stórt knús til ykkar allra!!!
biiiiiiiiiisous
Heiða



Velkomin til baka :-)
Kveðja Lauga
#1
09. apríl 2008 klukkan 09:39
Mange takk ;)
#2
09. apríl 2008 klukkan 11:20
Jibbííí...loksins nýtt blogg :) :)
#3
09. apríl 2008 klukkan 12:09
 
sæa og bjössi
VÁVÁ VÁ, hehe !!! Stórt KNÚS.
#4
09. apríl 2008 klukkan 21:57
Sæl Heiða mín, mikið er ég fegin að finna fleiri heimasíður frá frændfólkinu mínu.
Það er svo gaman að fylgjast með hvað fólk er að aðhafast, jæja allavega svona þegar ég gef mér tíma í það. Er alveg á fullu í skólanum og bara gaman en pínku erfitt líka með 3 börn.
Sigurjón er annars að koma heim í kvöld svo þetta verður auðveldara.
Knús og kossar!
#5
10. apríl 2008 klukkan 14:49
Sigurlaug ÁrnadóttirVá yndisleg færsla :) Þú ert svo mikill snillingur!
#6
10. apríl 2008 klukkan 21:42
Heiða Björg JóhannsdóttirTakk Sigurlaug mín! :) Snillingur veit ég nú ekki! Það ert frekar þú sem ert snillingur! búin að læra að gifsa og alles!! ;)
#7
10. apríl 2008 klukkan 22:07
Þú ert mögnuð, Heiða, mögnuð.
#8
11. apríl 2008 klukkan 11:01
Hó Hó...já..alveg mögnuð!..lol..þið eruð svo sætar! ég fer bara hjá mér ... að ég skuli vera sögð snillingur og svo líka mögnuð!! ;D vá...
#9
11. apríl 2008 klukkan 14:52
 
erla
það er nú bara engin eins og þú Heiða.. þú ert snillingur á þínu sviði :)
minni er farið að hlakka til að sjá myndir frá Berlínarferðinni.,.. og frá því sem þú ert að bralla út í París...!!!
#10
20. apríl 2008 klukkan 10:55

Skrifa athugasemd

Profil

  • Nafn: Heiða Björg Jóhannsdóttir
  • Netfang: heidab3@gmail.com
  • Staður: París
  • Atvinna: Tónlistamaður - Tilvonandi mússikþerapisti

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...